Sunday, August 12, 2007

Komnar til Florida!

Hæhæ! við erum núna búnar að vera hér í tvo daga og búnar að vera aðallega á hótelinu og þar í kring. Fórum samt í svolitla verslunarferð með I-ride strætónum í gær og keyptum tölvu, ipod, mp3 spilara og fullt af skóm! hér er mynd af þeim:




Síðan erum við búnar að fara fullt í sund og slappa af og liggja í sólinni (fengum m.a.s. smá sólbruna í dag, þurfum greinilega að vera örlátari á sólarvörnina! :p) og skoða fullt af minjagripabúðum og disneybúðum og svoleiðis dóti. Okkur langar mikið að kaupa alls konar hluti en það er ekki kaupa allt svo að við ákváðum að taka bara myndir af sumu í staðinn ;)

Við mátuðum fullt af höttum:




og sáum líka svona skrítna hákarla í flösku:

Svo er voðalega gott í sundi! Sérstaklega því að það er svo heitt og sundlaugin er þægilega köld. Það er svo heitt að það er ekki hægt að ganga á stéttinni án þess að brenna sig!

2 comments:

thorunn said...

hæ er að prufa hvort þetta virkar

thorunn said...

Ok, ég er alla vega komin inn á þetta núna :) mér líst rosa vel á þessa bláu skó. Annars er þetta spurning hvort þetta er barn með hatt eða hattur með barn. Ég ætlaði nú bara ekki að þekkja þessa skvísu sem er þarna með grænrósótt der, en svo fattaði ég það :)Alveg væri ég til í að vera þarna ofan í sundlauginn með ykkur, þetta lítur út fyrir að vera notalegur "kælir".