Thursday, August 2, 2007

8 dagar...

Nú er ég búin að bæta inn nokkrum skemmtilegum tenglum á síðuna, m.a. á Disney World, hótelið okkar, nokkra veitingastaði í nágrenninu og veðrið í Orlando.

Upplýsingarnar á þessari veður síðu eru nú samt svolítið skrítnar og hóta þrumuveðri alla daga í spánni, en næstum alltaf þegar ég kíki á hana er heiðskýrt eða léttskýjað í "current conditions". Þrumuveðrið skellur víst nefnilega oftast snögglega á og gengur hratt yfir og þá kemur sól aftur :) Hitinn er aftur á móti milli 25°C og 30°C á daginn (fer niður undir 22°C á næturnar). Setti töflu hér til hliðar sem umreiknar milli °F og °C svo að hitatölurnar séu skiljanlegri ;)

En það er sjálfsagt sniðugt að hafa með sér þurra hlíraboli og stuttbuxur ef maður lendir í úrhellinu!

1 comment:

thorunn said...

Helga og Hildur eru að verða búnar að pakka og telja nú niður klukkustundirnar þar til lagt verður af stað. Það er setið löngum stundum yfir innkaupalistanum og ýmist bætt við á hann eða strikað út :)
spennan magnast!